Ökukennarinn

Að læra að keyra veitir aukið frelsi – bæði í starfi, samgöngum og persónulega lífinu.

Um ökukennarann

Ökukennarinn hjálpar þér að öðlast ökuréttindi á einfaldan og skemmtilegan hátt. Markmiðið mitt er að gera þig að öruggum og ábyrgum ökumanni sem hefur yndi af akstri.

Kennslubifreiðarnar eru beinskiptur Peugeot 308 og sjálfskiptur Nissan Qashqai. Liprir, þægilegir og auðveldir í akstri, smelltu á myndirnar.

Ég byrjaði að kenna akstur fyrir nokkrum árum en er með mikla reynslu sem flugkennari, við krefjandi aðstæður. Ég get því tryggt þér faglega og árangursríka kennslu.

Hringdu í 899-3399 til að fá frekari upplýsingar, smelltu á símann neðst á síðunni, sendu mér tölvupóst eða skilaboð á Messenger. Byrjum ferðalagið þitt að ökuréttindunum saman!

Mynd af Sindra Sindri
Mynd af Peugeot 308 Bílarnir
Umferðarsáttmálinn Umferðarsáttmálinn
Skanna eða smella Skanna eða smella

Ökukennarinn - Þjónusta

Grunnnámskeið

Kennsla fyrir byrjendur til almennra ökuréttinda í B-flokki. Öll undirstöðuatriði aksturs fyrir ökuprófið kennd sem og ýmislegt tengt umferðinni sem gott er að vita og kunna, sjá t.d. myndbönd Samgöngustofu.

Ökukennarinn kennir á öllu höfuðborgarsvæðinu.

Gera má ráð fyrir að námið taki 17 til 25 ökutíma fyrir flesta og að kostnaður sé um 260.000 til 390.000 krónur, auk ökuskóla eitt, tvö og þrjú, kennslubókar, prófagjalda, passamyndar, læknisvottorðs og ökuskírteinis.

Endurmenntun

Fyrir þá sem vilja bæta ökulag sitt eða öðlast meiri reynslu, til dæmis í akstri á höfuðborgarsvæðinu eða við erfiðar aðstæður. Einnig fyrir þá sem hafa ekki ekið í langan tíma og vilja taka nokkra ökutíma með kennara til öryggis.

Ökukennarinn aðstoðar einnig þá sem eru að öðlast réttindin að nýju eftir sviftingu.

Akstursmat

Ökukennarinn býður upp á akstursmat fyrir fullnaðarskírteini ökumanna í B-flokki. Akstursmat tekur um 50 mínútur og má fara fram á eigin bifreið eða í bíl ökukennara.

Athugið að ekki er hægt að falla á matinu, en ef öryggi ökumanns er ábótavant getur það komið fyrir að ökukennarinn skrifi ekki upp á matið, þó það sé sjaldgæft. Kostnaður er 15.500 kr.

Hringdu í síma 8993399 og fáðu meiri upplýsingar